Lagt verður af stað frá Stríðsárasafninu. Forsala verður á styrktarvarningi.
Mæðradagsganga Reyðarfirði
08.05.2016
Klukkan 11:00
Gengið verður í takt við veður og vinda og getu hvers og eins.
Forsala á varningi til styrktar Göngum saman fer fram í Molanum föstudaginn 6. maí frá 14:00 til 18:00 og laugardaginn 7. maí frá kl. 12:00 til 17:00.
Frítt er í gönguna en varningur verður einnig til sölu á göngustað og tekið við frjálsum framlögum.
Svaladrykkir í boði Ölgerðarinnar að göngu lokinni og Fjarðabyggð býður göngu-Hrólfum frítt í sund á Eskifirði og Neskaupstað á Mæðradaginn.
Hlökkum til að sjá sem flesta með í för!