mobile navigation trigger mobile search trigger
21.02.2017

Mannvit og Fjarðabyggð óska eftir að ráða matráð

Mannvit og Fjarðabyggð óska eftir að ráða matráð til að reka mötuneyti starfsmanna og sjá um að útbúa og framreiða hádegismat.

Mötuneytið er staðsett að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði - efri hæð.

Vinnutími er að jafnaði frá kl. 9:30 til 13:30 alla virka daga. 

Í mötuneytinu borða 20 til 30 einstaklingar á hverjum degi en boðið er upp á heita máltíð sem elduð er á staðnum.

Viðkomandi þarf af geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 2. mars 2017.

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Sverrisson í síma 470 9092. 

Umsóknum skal skila á netfangið gunnlaugur.sverrisson@fjardabyggd.is