mobile navigation trigger mobile search trigger
08.05.2018

Umsjónakennari í Mjóafirði

Laus er til umsóknar staða umsjónakennara við útibú Nesskóla í Mjóafirði.

Við Nesskóla stunda um 215 nemendur nám en í útibúinu er einn nemandi þetta skólaár.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  •         Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
  •         Reynsla af kennslu æskileg.
  •         Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  •         Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  •         Góðir skipulagshæfileikar.
  •         Ábyrgð og stundvísi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2018

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Einar Már Sigurðarson, skólastjóri í síma 8631739 eða á netfanginu ems@skolar.fjardabyggd.is

Umsjónarkennari starfslýsing

Smelltu hér til að sækja um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar