mobile navigation trigger mobile search trigger
15.09.2015

Náms- og starfráðgjafi í Fjarðabyggð

75% staða náms- og starfsráðgjafa við Grunnskóla Eskifjarðar, Grunnskóla Reyðarfjarðar, Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðarskóla er laus til umsóknar.

Í skólunum eru u.þ.b. 400 nemendur á aldrinu 6-16 ára. Nánari upplýsingar um skólana er að finna á heimasíðu þeirra grunnesk.is, grunnrey.is, fask.is og stodvarfjordur.is.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Hafa réttindi til að starfa við náms- og starfsráðgjöf
  • Starfsreynsla æskileg
  • Leiðtogahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði í starfi
  • Lipurð í samskiptum

Helstu verkefni eru:

  • Persónulegur og félagslegur stuðningur við nemendur þannig að þeir eigi auðveldara með að átta sig á eigin áhugamálum og hæfileikum og setja sér raunhæf markmið.
  • Leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi.
  • Veita nemendum ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval.

Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.

Framlengdur umsóknarfrestur er til 20. október og skulu umsóknir berast rafrænt á rey@skolar.fjardabyggd.is eða í merktu umslagi á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf og ábendingar um meðmælendur.

Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar, í síma 474 1647 eða á netfanginu asta@skolar.fjardabyggd.is.