mobile navigation trigger mobile search trigger
26.06.2015

Námskeið á bæjarhátíðinni Pólar á Stöðvarfirði 7. - 12. júlí

Námskeiðin eru ókeypis og öllum velkomið að taka þátt. Skráning er á  polarstodvarfjordur@gmail.com.

Námskeið á bæjarhátíðinni Pólar á Stöðvarfirði 7. - 12. júlí

Umhverfíng

Skapandi úrvinnsla á matvælum sem ýmist færu til spillis eða koma úr nærumhverfi Stöðvarfjarðar. Farið verður í söfnunarferðir á fjöll og sjó, nýjar leiðir í matargerð skoðaðar í sjálfbæru samhengi með tilraunagleði að leiðarljósi. Aðalafurð smiðjunnar er veisla á lokadegi hátíðarinnar.

Accoustic Conciousness and whales

Námskeiðið er sameiginleg rannsókn þar sem reynt verður að átta sig á því hvort skynjun hvala á tíma og rými tengist heyrn þeirra á einhvern hátt. Markmiðip er að átta sig í ákveðnum skilningi á ólíkri meðvitund hvala og manna og skapa listaverk byggð á þeirri skoðun. Kennari er hljóðtæknifræðingurinn Kristian Ross, námskeiðið fer fram á ensku.

Hjartað

Námskeið sem nýst um að skapa hjarta Pólar 2015. Stefnan er sett á að byggja aðstöðu þar sem þáttakendur hátíðarinnar geta komið saman og slakað á, eldað sér mat, fengið kaffi og með því og hlustað á ljúfa tóna eða tekið þátt í góðu spjalli.

Námskeiðið felur í sér byggingu hjartans, eldunaraðstöðu, sæti, borð og annað því um líkt, auk skúlptúra og hvers kyns fyrirbæra sem geta prýtt hjartað og er því nokkurs konar skapandi smíðavöllur.

Námskeiðin eru ókeypis og öllum velkomið að taka þátt! Það þarf bara að skrá sig með því að senda tölvupóst:

polarstodvarfjordur@gmail.com   

Website :  http://polarstodvarfjordur.wix.com/polar15

Facebook:  https://www.facebook.com/PolarStodvarfjordur?fref=ts

Facebook event: https://www.facebook.com/events/1415510265442099/