mobile navigation trigger mobile search trigger
26.08.2016

Norðfjörður – stálþil við netagerðarbryggju

Hafnasjóður Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í stálþil vegna netagerðarbryggju í Norðfirði. 

Helstu verkþættir og magntölur eru:

  • Reka niður 70 stk. af tvöföldum stálþilsplötum, bolta 83 m. langan stagbita við þilið og koma fyrir 16 stögum.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. desember 2016.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar frá og með þriðjudeginum 30. ágúst  2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Tilboðin skulu berast á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði  eða til Vegagerðarinnar, Borgartúni 7 í Reykjavík og  eigi síðar en þriðjudaginn 13. september 2016, kl 14:00 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann sama dag.