Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir laust starf ráðgjafa í 100% starfshlutfall.
Um er að ræða framtíðarstarf á mjög fjölbreyttum og spennandi vettvangi hjá sveitarfélagi sem hefur stækkað ört á undanförnum árum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
- Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
- Barnaverndarmál
- Fjárhagsaðstoð
- Félagsleg ráðgjöf
- Daggæsla barna í heimahúsum
- Þátttaka í ýmis konar teymisvinnu
Við leitum að einstaklingi með:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynslu af starfi innan félagsþjónustu og vinnslu barnaverndarmála er nauðsynleg
- Skipulagshæfileika
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Launakjör eru skv. kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd Fjarðabyggðar. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Þórarinsdóttir félagsmálastjóri í síma 470 9000 og á netfanginu sigrun.thorarinsdottir@fjardabyggd.is.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast á bæjarskrifstofu Fjarðarbyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð fyrir 12. febrúar 2015.