Fjarðabyggð óskar eftir áhugasömum aðila til að taka á leigu félagsheimilið Félagslund á Reyðarfirði til uppbyggingar menningarstarfsemi.
Rekstraraðili skal m.a. annast menningarstarfsemi í Félagslundi, sjá um samskipti við leikfélag og tónlistarfólk og leigja húsið fyrir fundi og til einstaklinga og félagasamtaka.
Umsækjandi skal leggja fram tillögu að rekstrarfyrirkomulagi hússins með tilliti til þeirra krafna og óska sem settar eru fram í samningskaupalýsingu.
Á grundvelli lausna og verðs, verður aðili valinn til að taka húsið á leigu. Tillögum, merktar „Félagslundur 2016“, skal skilað í lok tilboðsgerðarfrests sem er 6.maí 2016, til Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2 Reyðarfirði.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður stjórnsýslu í síma 470 9092.