mobile navigation trigger mobile search trigger
14.11.2015

Skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi

Skipulagslýsing vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 verður til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugátt bókasafna á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Norðfirði til 3. desember nk.

Skipulagslýsingin er vegna stækkunar reits O5 á Kirkjubólseyrum í Norðfirði.

Þeir sem hafa áhuga geta kynnt sér lýsinguna á þessu tímabili og komið með ábendingar vegna hennar. Skila skal skriflegum ábendingum til skipulags- og byggingarfulltrúa Fjaraðbyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð

Skipulagslýsing vegna Kirkjubólseyra.pdf

Kynning skipulagslýsing- auglýsing.pdf