mobile navigation trigger mobile search trigger
03.06.2015

Auglýsing vegna skipulagsmála í Fjarðabyggð

Auglýst er tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdráttur fyrir Norðfjörð, vegna landfyllingar við Norðfjarðarhöfn ásamt breytingu á deiliskipulagi Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni ásamt umhverfisskýrslu. Einnig er auglýst tillaga að deiliskipulagi Óseyrar í Stöðvarfirði.

  • Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdráttur fyrir Norðfjörð, vegna landfyllingar við Norðfjarðarhöfn samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu. Breytingin felst í að gert er ráð fyrir 2,4 ha landfyllingu undir lóðir fyrir hafnsækna starfsemi.

  • Samhliða tillögu að aðalskipulagsbreytingu er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni skv. 41. gr. laga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu. Breytingin fellst í að gert er ráð fyrir nýjum lóðum fyrir hafnsækna starfsemi á landfyllingu.

  • Einnig er auglýst tillaga að deiliskipulagi Óseyrar í Stöðvarfirði skv. 41. gr. laga nr. 123/2010.  Tillagan felur meðal annars í sér að sköpuð er umgjörð um ferðaþjónustu, frístundasvæði og skógrækt. Gert er ráð fyrir byggingu smáhýsa, geymslum eða öðrum byggingum tengdum ferðaþjónustu í skipulagstillögunni.

Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð og í þjónustugáttum í bókasöfnunum á Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði frá og með 12. júní 2015 til og með 24. júlí 2015. Athugasemdarfrestur er til sama tíma.

Tillögurnar verða einnig til sýnis á heimasíðu Fjarðabyggðar, www.fjardabyggd.is

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir.

Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð

Skipulagsgögn vegna auglýsingarinnar:

Landfylling Norðfjarðarhöfn AÐALSKIPULAG.pdf

Landfylling Norðfjarðarhöfn GREINARGERÐ.pdf

Naust 1 DEILISKIPULAG.pdf

Naust 1 GREINARGERÐ.pdf