mobile navigation trigger mobile search trigger
05.02.2018

Skólaliði í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar auglýsir eftir skólaliða. Í skólanum eru 95 nemendur í 1.-10. bekk. 

Starf skólaliða felst í: 

  • þrifum og tiltekt
  • gæslu nemendaúti í frímínútum
  • leiðsögn og umsjón með nemendum á göngum og matsal
  • stuðningi við starf í bekkjum
  • fylgd í íþróttir og sund í forföllum
  • öðrum stuðningi við skólastarf að beiðni stjórnenda

Reynsla og æskileg hæfni:

  • ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
  • frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • ánægja af starfi með börnum
  • snyrtimennska, dugnaður og ábyrgðarkennd
  • kostur er að viðkomandi hafi reynslu af starfi með börnum

Um er að ræða u.þ.b. 80% starfshlutfall. Vinnurtími er frá 9:30- 16:00

Starfslýsing - Stuðningsfulltrúi I

Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar 2018.

Nánari upplýsingar um starfið veitir 
Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri og Guðfinna Kristjánsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 475-9020. Hægt er að senda tölvupóst á: eya@skolar.fjardabyggd.is eða gudfinna@skolar.fjardabyggd.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga.  

Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um rafrænt á heimasíðu Fjarðabyggðar. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá.