Laus er til umsóknar 100 % staða skólaliða við Grunnskóla Reyðarfjarðar frá 1. mars 2016.
Grunnskóli Reyðarfjarðar er staðsettur í glæsilegu húsnæði og stunda 160 nemendur nám við skólann.
Umsækjandi þarf að búa yfir samskiptahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum, jákvæðni og samviskusemi.
Helstu verkefni skólaliða eru að fylgjast með og aðstoða nemendur í leik og starfi, vinna við afgreiðslu í mötuneyti og þrif á skólahúsnæði. Áhersla er lögð á sveigjanleika, gott samstarf við aðra starfsmenn skólans og þátttöku í innleiðingu þróunarverkefna.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi LN og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar og skulu umsóknir berast rafrænt á rey@skolar.fjardabyggd.is eða í merktu umslagi á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf og ábendingar um meðmælendur.
Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Reyðarfjarðar, í síma 474 1647 eða á rey@skolar.fjardabyggd.is.