mobile navigation trigger mobile search trigger
17.08.2016

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn

Slökkvilið Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn til starfa á slökkvistöðinni að Hrauni á Reyðarfirði.  Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga og slökkvistörf. 

Helstu verkefni:

Slökkvistörf, sjúkraflutningar, reykköfun, æfingar, þjálfun, umhirða tækja og búnaðar.

Menntunar- og/eða hæfniskröfur:

Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001, m.a.

  • Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið.
  • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.
  • Standast læknisskoðun og þrekpróf auk annarra inntökuprófa.
  • Hafa jákvætt hugarfar og færni í mannlegum samskiptum.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að hafa á sér gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
  • Menntun og/eða reynslu af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur.

Fylgigögn:

Prófskírteini, læknisvottorð, sakavottorð, ljósrit af ökuskírteini og ferilsskrá.

Kröfur um viðbragð setja skoður á búsetu innan ákveðinnar fjarlægðar frá slökkvistöð.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkvilisð- og sjúkraflutningamanna.

Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Fjarðabyggðar, www.fjardabyggd.is

Sækja um starf

Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2016.

Nánari upplýsingar veitir  Guðmundur Helgi Sigfússon slökkviliðsstjóri, mummi@fjardabyggd.is eða í síma 470 9081.