mobile navigation trigger mobile search trigger
19.01.2018

Spennandi atvinnutækifæri í Fjarðabyggð - Verkefnastjóri HáAust

Fjarðabyggð, fyrirtæki og stofnanir í sveitarfélaginu, ásamt Fljótsdalshéraði og Háskólanum á Akureyri vinna að undirbúningi að stofnun Háskólaseturs Austfjarða. Starfshópur um uppbyggingu háskólaseturs Austfjarða auglýsir nú eftir verkefnastjóra fyrir verkefnið.

Spennandi atvinnutækifæri í Fjarðabyggð - Verkefnastjóri HáAust

Leitað er að kraftmiklum og úrræðagóðum aðila með brennandi áhuga á umbótaverkefnum byggðarlaga og uppbyggingarstarfi í háskólaumhverfi. Verkefnastjórinn mun leiða undirbúninginn. Ráðið verður í starfið til tveggja ára með möguleika á framlengingu starfsins að þeim tíma liðnum

Meðal verkefna er greining á þörfum fyrir háskólasetur og mótun framtíðarsýnar fyrir svæðisbundna háskólamenntun. Verkefnastjóri annast einnig daglegan rekstur á verkefnum vegna uppbyggingar háskólasetursins, er stýrihópi til ráðgjafar og hefur auk þess frumkvæði að aðgerðum sem styðja við uppbyggingu háskólasetursins. Þá sér verkefnastjóri um kynningarstarf vegna verkefnisins háskólaseturs og samskipti við fjölmiðla. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.

Meðal helstu verkefna verkefnastjórana eru:

  • Stefnumörkun, þarfagreining, daglegur rekstur og þróun á verkefnum.
  • Umsjón og eftirlit með verkefnum.
  • Starfsmaður stýrihóps.
  • Fjármál og rekstur.
  • Kynningarmál og samskipti við fjölmiðla.
  • Umsjón með gerð aðildarsamninga.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf á grunnstigi sem nýtist í starfi er skilyrði, meistarapróf er kostur.
  • Góð þekking á evrópsku háskólaumhverfi er kostur.
  • Góð þekking á íslensku stjórn- og menntakerfi er kostur.
  • Reynsla af stjórnun og rekstri / reynsla af verkefnastjórnun.
  • Færni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli.
  • Hugmyndaríki, lausnarmiðun og þolgæði.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

Sótt er um starfið á vef Capacent.