mobile navigation trigger mobile search trigger
23.09.2016

Staða enskukennara við Grunnskóla Reyðarfjarðar

Vegna forfalla auglýsir Grunnskóli Reyðarfjarðar stöðu enskukennara lausa til umsóknar um óákveðinn tíma. Viðkomandi mun annast kennslu í 5. – 10. bekk og þarf að geta hafið störf 13. október nk.

Hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
  • Reynsla af kennslu æskileg.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Um 160 nemendur stunda nám við skólann sem staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2016.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 474-1247 eða 863-1247. 

Netfang: asta@skolar.fjardabyggd.is.

Sækja um starf