mobile navigation trigger mobile search trigger
26.01.2018

Starfsmaður í Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar

Framtíðarstarf í Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar

Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar auglýsir eftir kvenkyns starfsmanni í framtíðarstarf frá og með 1. mars næstkomandi. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu.

Starfið, sem er vaktavinna, felur m.a. í sér; móttöku gesta, afgreiðslu, baðvörslu, þrif og aðra almenna þjónustu við gesti íþróttamiðstöðvarinnar. Mikilvægur hluti starfsins er að hafa samskipti við börn og unglinga. Viðkomandi þarf að gangast undir öryggispróf sundstaða sem og skyndihjálparnámskeið. 

  • Leitað er að starfsmanni sem er traustur, reglusamur og vandvirkur og á auðvelt með að eiga samskipti við fólk.
  • Gott væri ef viðkomandi hefði reynslu af sambærilegum störfum.
  • Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára.

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfslýsing starfsmaður Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar.pdf

Frekari upplýsingar um starfið gefur Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma: 893-9098 og netfang: bjarki.a.oddsson@fjardabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar. ATH - Framlengdur umsóknarfrestur

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar – starf.fjardabyggd.is