Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir eftir starfsmanni í félagsstarf aldraðra í Neskaupstað. Í boði er 60% starf frá 1. september 2016.
Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum, auk þess að hafa áhuga á tómstundastarfi. Umsóknarfrestur er til 15. júlí 2016.
Laun eru samkvæmt samningum Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknareyðublöð má nálgast á vefsíðu Fjarðabyggðar og á bæjarskrifstofu.
Nánari upplýsingar gefur Helga Elísabet Guðlaugsdóttir í síma 470-9000 eða í gegnum netfangið helga.gudlaugsdottir@fjardabyggd.is
Nánari upplýsingar um laus störf hjá Fjarðabyggð og starfsumsókn