Staða stuðningsfulltrúa á miðstigi/aðstoðarmanns í Skólaseli við Grunnskóla Reyðarfjarðar er laus til umsóknar.
Um er að ræða 65% starf sem felur í sér stuðning við nemendur á miðstigi og vinnu í Skólaseli (lengd viðvera). Starfsmaðurinn starfar undir stjórn forstöðumanns Skólasels og deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara hverju sinni. Starfstími er frá kl. 9:50 - 16:00. 180 nemendur stunda nám við skólann sem staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Ábyrgð og stundvísi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 14. janúar 2018 og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Starfslýsing - Stuðningsfulltrúi I
Starfslýsing - Aðstoðarmaður í Skólaseli
Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, asta@skolar.fjardabyggd.is og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, gudlaug@skolar.fjardabyggd.is í síma 474-1247.