mobile navigation trigger mobile search trigger
10.02.2017

Stuðningsfulltrúi í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar vill ráða stuðningsfulltrúa til starfa sem fyrst.

Um er að ræða 80% starf, tímabundið með möguleika á framhaldsráðningu.

Umsækjendur þurfa að hafa góða samskiptahæfni, vera sveigjanlegir og geta aðstoðað nemendur við nám, ýmist í bekk eða einstaklingslega. Stúdentspróf eða sambærilegt próf æskilegt.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttafélags.

Umsóknarfrestur er til 24. febrúar n.k.                                                                             

Upplýsingar gefa: Skólastjóri eða aðstoðarskólastjóri í síma: 475-9020