Grunnskóli Reyðarfjarðar leitar að starfsfólki í eftirfarandi störf:
- Stuðningsfulltrúa í 60% starf til starfa á yngsta og miðstigi. Stuðningsfulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara hverju sinni og er til aðstoðar við nemendur inni í bekk og öðru skólastarfi.
- Forstöðumanni Skólasels í 60% starf. Starf forstöðumanns felur í sér að sjá um og skipuleggja daglegt starf heilsdagsskólans ásamt annarri skipulagsvinnu.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Ábyrgð og stundvísi.
Um 175 nemendur stunda nám við skólann sem staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2017.
Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, asta@skolar.fjardabyggd.is og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, gudlaug@skolar.fjardabyggd.is í síma 474-1247.
Sótt er um störfin í Íbúagátt Fjarðabyggðar.