Grunnskóli Reyðarfjarðar leitar að stuðningsfulltrúa til starfa á miðstigi.
Um 60% starf er að ræða og vinnutími er frá kl. 08:00.
Um 160 nemendur stunda nám við skólann sem staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.
Stuðningsfulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara hverju sinni og er til aðstoðar við nemendur inni í bekk og öðru skólastarfi.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Ábyrgð og stundvísi.
Laun eru samkvæmt samningum LN við AFL/Fosa.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2016.
Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir, skólastjóri, í síma 474 1247 eða 863 1247 eða á netfanginu asta@skolar.fjardabyggd.is.
Sjá starfslýsingu_stuðningsfulltrúa
Sótt er um starfið rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar.
Nánari upplýsingar um laus störf hjá Fjarðabyggð og starfsumsókn