mobile navigation trigger mobile search trigger
05.02.2017

Styrkir til menningarmála 2017

Menningar- og safnanefnd Fjarðabyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála fjárhagsárið 2017. Umsóknarfrestur er til 10.febrúar nk. 

Styrkir til menningarmála 2017

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir í Fjarðabyggð geta sótt um styrk til menningarstarfs eða einstakra menningarverkefna.

Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Fjarðabyggð með fastri búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Fjarðabyggð eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi í Fjarðabyggð.

Ekki eru veittir styrkir til náms, reksturs eða viðhalds húsnæðis.

Umsóknarfrestur er til 10. febrúar nk.

Umsóknum merktum „Menningarstyrkir 2017“ skal skilað á bæjarskrifstofuna, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 470 9000.

Sótt er um rafrænt.

Hér er hægt að nálgast úthlutunarreglur.