Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir sumarstarf í búsetuþjónustu á Reyðarfirði.
Um er að ræða tímabundið afleysingastarf í sumar með möguleika á framlengingu. Í boði er 50-100% starfshlutfall á tímabilinu 15. maí til 15. september.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hvetja og styðja notendur þjónustunnar til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Leiðbeinir/aðstoðar notendur þjónustunnar við athafnir daglegs lífs.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn.
Hæfniskröfur:
- Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvætt viðhorf, sveigjanleiki, stundvísi og áreiðanleiki.
- Gerð er krafa um að starfsmaður tali og skilji íslensku.
- Bílpróf er æskilegt.
Nánari upplýsingar veitir Helga Elísabet Guðlaugsdóttir deildarstjóri búsetuþjónustu í síma 470-9000 eða netfanginu helga.gudlaugsdottir@fjardabyggd.is
Ferilskrá skal fylgja umsókn.
Sótt um í Íbúagátt Fjarðabyggðar.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2017.