mobile navigation trigger mobile search trigger
26.04.2017

Sumarstarf - Félagsleg heimaþjónusta

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar auglýsir sumarstarf í félagslegri heimaþjónustu á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði 

Um er að ræða tímabundið afleysingastarf í sumar með möguleika á framlengingu. Starfshlutfall er samkomulag. 

Starfsmaður félagslegrar heimaþjónustu veitir félagslegan stuðning og persónulega aðstoð samkvæmt þjónustusamningi með það að markmiði að þjónustunotandi geti búið á eigin heimili við öryggi og sem bestar aðstæður.

Í starfinu felst einnig aðstoð við öll almenn heimilisstörf sem notandi getur ekki annast sjálfur.

Umsækjendur þurfa að vera samviskusamir, heiðarlegir, stundvísir, með þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. Gerð er krafa um hreint sakavottorð. Afnot af bíl og bílpróf er æskilegt en ekki skilyrði.

Nánari upplýsingar veitir Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir félagsmálastjóri í síma 470-9000 eða netfanginu helga.gudlaugsdottir@fjardabyggd.is

Laun eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknum er skilað rafrænt í Íbúagátt Fjarðabyggðar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. maí nk.