mobile navigation trigger mobile search trigger
20.02.2017

Sumarstarf - Frakkar á Íslandsmiðum

Safnastofnun Fjarðabyggðar auglýsir eftir starfsmanni til starfa við safnið Frakkar á Íslandsmiðum Fáskrúðsfirði, sumarið 2017.

Ráðningartími er frá 15. maí til 15. september.

Laun samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.

Opnunartími safnsins er frá 15. maí til 15. september frá kl. 10:00 til 18:00 alla daga vikunnar.

Hæfniskröfur:

Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur frumkvæði, er vanur sjálfstæðum vinnubrögðum og á auðvelt með samskipti við fólk.  

Æskilegt er að umsækjandi búi yfir tungumálakunnáttu og þekki til safnamála.

Nánari upplýsingar veitir Pétur Sörensson, forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar. Einnig er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið sofn@fjardabyggd.is

 

Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á Íbúagátt Fjarðabyggðar.

 

Umsóknarfrestur er til 4. apríl 2017.