mobile navigation trigger mobile search trigger
04.09.2015

Sundlaug Eskifjarðar - viðhaldsvinnu aftur seinkað vegna veðurs

Sú staða er komin upp að fresta verður enn og aftur viðhaldsvinnu við Sundlaug Eskifjarðar sökum óhagstæðrar veðurspár. Verður næst reynt að koma þessari vinnu í kring sunnudaginn og mánudaginn 6. og 7. september.

Gangi það eftir verður sundlaug, vaðlaug og rennibrautarlaug lokuð þá daga. Verður þá eingöngu opið í líkamsrækt, heita potta og gufubað.

Beðist er velvirðingar á þessum óhjákvæmilegu töfum.

Sundlaug Eskifjarðar - viðhaldsvinnu aftur seinkað vegna veðurs