mobile navigation trigger mobile search trigger
08.02.2016

Þjónustuíbúðir Bakkabakka - sumarafleysing

Sumarafleysing á þjónustuíbúðunum að Bakkabakka 15 Neskaupstað.

Um er að ræða stuðning við fatlað fólk við allar athafnir daglegs lífs með því markmiði að það geti lifað eðlilegu lífi og tekið þátt í samfélaginu.

Starfið er í vaktavinnu.

Helstu verkefni:

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs.
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks, rík þjónustulund, jákvæðni, framtakssemi og samviskusemi.
  • Viðkomandi verður að hafa hreint sakavottorð og vera orðinn 18 ára.


Frekari upplýsingar veitir:

Kristín Ella Guðm. Forstöðuþroskaþjálfi í síma 897-0916 eða á kristin.ella.gudmundsdottir@fjardabyggd.is.

Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 2016.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá. Öllum umsóknum verður svarað.

Sækja um starfið