mobile navigation trigger mobile search trigger
18.09.2015

Þriðjungi minni flúor í grasi

Flúor í grasi hefur farið minnkandi í Reyðarfirði þrjú ár í röð. Í sumar lækkuðu gildin að meðaltali um þriðjung á milli ára. Hvað umhverfisáhrif snertir, skipar þessi árangur Alcoa Fjarðaáli í fremstu röð, að sögn Magnúsar Ásmundssonar, forstjóra.

Þriðjungi minni flúor í grasi
Tún og hagar á Reyðarfirði.

Alls eru framkvæmdar sex mælingar á hverju sumri: tvær á mánuði í júní, júlí og ágúst og reyndist meðaltal nýliðins sumars vera 19,7 µg samanborið við 30,8 µg árið 2014 og 37,8 µg sumarið 2013.

Meðaltal þessara mælinga á flúormagni í grasi er síðan borið saman við viðmiðunarmörk sem sett eru í vöktunaráætlun álversins, en þau eru 40 µg F/g gras á ársgrundvelli. Þau mörk segja til um hvort frekari eftirfylgni og rannsókna er þörf eða ekki.

Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, segir mjög ánægjulegt að sjá staðfestingu þess hve vel hefur gengið enda séu umhverfismál og velferð samfélagsins ávallt í fyrirrúmi í stefnu fyrirtækisins. Fjarðaál er meðal þeirra álvera sem standa sig best á heimsvísu hvað varðar magn mengandi efna í útblæstri og af öllum álverum Alcoa er magnið minnst hjá Fjarðaáli. „Við erum afar ánægð með niðurstöður sumarsins og þann árangur sem náðst hefur. Starfsfólkið hefur lagt sitt af mörkum til að ná sífellt betri árangri en ytri aðstæður sem við höfum ekki stjórn á, svo sem veður, hafa einnig áhrif á flúor sem mælist í grasi,“ segir Magnús.

Gildin fyrir flúor í grasi voru mun lægri í sumar en viðmið fyrir grasbíta segja til um. Síðar í haust verður safnað sýnum úr heyi sem aflað var í Reyðarfirði í sumar og verður þá hægt að sjá hvert flúorinnihaldið er í þeirri fæðu sem dýrin neyta á ársgrundvelli. Heysýni hafa ávallt sýnt lág gildi í Reyðarfirði og má því reikna með að talan fyrir flúroinnihald í fæðu dýranna komi til með að lækka frekar. Samkvæmt skoðunum og rannsóknum dýralækna hafa til þessa engar vísbendingar komið fram sem gefa til kynna að flúor í Reyðarfirði hafi haft áhrif á grasbíta. Alcoa setur sér mjög strangar kröfur í umhverfismálum og umhverfisvernd er þungamiðja í starfsemi fyrirtækisins um allan heim. Starfsfólk Fjarðaáls mun áfram vinna að stöðugum umbótum enda hvílir sú réttmæta skylda á Alcoa að lágmarka sem kostur er þau áhrif sem starfsemin hefur á umhverfið. Að þvi vill Alcoa vinna með ábyrgum og sjálfbærum hætti, hér eftir sem hingað til.

Nánari upplýsingar um flúor og umhverfi