mobile navigation trigger mobile search trigger
11.04.2016

Sundlaug Norðfjarðar - sumarstörf

Lausar eru til umsóknar þrjár stöður við Sundlaug Norðfjarðar. Um sumarstörf er að ræða en ráðnir verða tveir karlmenn og ein kona.

Í starfinu felst m.a.:

  • Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
  • Baðvarsla í klefum
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti
  • Þrif

Hæfniskröfur:

  • Standast hæfnispróf sundstaða.
  • Góð tungumálakunnátta í íslensku og ensku.
  • Góð samskiptahæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er framlengdur til 17. maí 2016.

Frekari upplýsingar um starfið gefur Sigurjón Egilsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar í síma: 863-7080 og netfang: sigurjon.egilsson@fjardabyggd.is.

Sótt er um starfið rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar

Einnig má skila umsóknum inn á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarfirði merktar „Starfsumsókn Sundlaug Norðfjarðar“ eða í afgreiðslu íþróttahúss eða sundlaugar í Neskaupstað. Umsóknareyðublöð má í þeim tilvikum nálgast í þjónustugáttum bókasafna eða á bæjarskrifstofunni.

Sækja um starfið