Bæjarstjórn Fjarðabyggðar auglýsir hér með að nýju tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, vegna stækkunar akstursíþróttasvæðis og nýs skotsvæðis vestan Bjarga á Reyðarfirði samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu.
Breytingin felst í að skotíþróttasvæði ofan Kolabotna á Eskifirði er fellt út og gert ráð fyrir nýju vestan Bjarga á Reyðarfirði. Jafnframt er gert ráð fyrir stækkun akstursíþróttasvæðis sem fyrir er vestan Bjarga.
Samhliða tillögu að aðalskipulagsbreytingu er auglýst tillaga að deiliskipulagi aksturs- og skotíþróttasvæði vestan Bjarga skv. 41. gr. laga nr. 123/2010 ásamt umhverfisskýrslu.
Skipulagssvæðið er 11,3 ha og gerir ráð fyrir akstursíþróttasvæði afmörkuðum brautum og skotíþróttasvæði með riffil- og haglabyssubrautum ásamt tengdri mannvirkjagerð.
Tillögurnar verða til sýnis á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð frá og með 15. júlí 2016 til og með 26. ágúst 2016. Athugasemdarfrestur er til sama tíma.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar. Skila skal skriflegum athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir.
Skipulags- og byggingafulltrúinn í Fjarðabyggð