mobile navigation trigger mobile search trigger
30.01.2016

Tökur að hefjast á Fortitude

Fyrri tökulotan hefst á Reyðarfirði, þriðjudaginn 2. febrúar nk. Vegna sérstakra aðstæðna við tökur þennan dag, eru íbúar beðnir um að hafa slökkt á útiljósum og jólaseríum frá kl. 16:30 til 20:00. Á það einkum við byggðina ofan við og í næsta nágrenni við Molann.

Tökur að hefjast á Fortitude

Íbúar á þessu svæði eru einnig beðnir um að hafa varann á sér með ljós í gluggum sem snúa út að Molanum, hafa þau slökkt eða draga fyrir sé þess kostur.

Þá verður götum lokað tímabundið á nokkrum stöðum í bæjarkjarnanum á meðan tökum stendur.

Í tilkynningu frá Pegasus sem dreift verður til íbúa á Reyðarfirði kemur fram að starfslið og leikarar biðjst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar ráðstafanir kunni að hafa í för með sér. Einnig er þakklæti komið á framfæri fyrir skilning fólks og þolinmæði.

Undirbúningur fyrir tökur hefur gengið að óskum og hefur Reyðarfjörður óðum verið að taka á sig mynd norska bæjarins Fortitude. Eins og glöggir hafa eflaust tekið eftir hefur liður í þeim undirbúningi verið að taka nður merkingar af byggingum og koma nýjum fyrir þar sem það á við.

Þessi fyrri tökulota sem hefst næstkomandi þriðjudag stendur út febrúarmánuð. 

Íbúatilkynning_Pegasus.pdf

Nánar um Fortitude í Fjarðabyggð