mobile navigation trigger mobile search trigger
26.02.2018

Tónlistarkennari við Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar

Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar vantar fjölhæfan tónlistarkennara til starfa frá og meðnæsta skólaári í 100% stöðu. Helst vantar píanókennara sem gæti kennt á eitthvað fleira, s.s. blokkflautu, gítar ogtónfræði en margt annað kemur til greina.

Umsóknarfrestur er til 31.mars

Mjög góð aðstaða er til kennslu í skólanum og mikið og gott samstarf við grunnskóla og leikskóla sem eru í sama húsnæði. Nemendur sækja flestir tíma á skólatíma grunnskóla. Um 80 nemendur eru í skólanum og er kennt á tveimur stöðum. Kjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og FÍH við Launanefnd sveitarfélaga. Upplýsingar veitir Valdimar Másson, skólastjóri Tónlistarskólans í síma 663 4401, eða í netfangi skólans, tonfast@ardabyggd.is.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar