mobile navigation trigger mobile search trigger
15.03.2018

Umsjónakennarar við Grunnskólann á Eskifirði

Um tvær 100% stöður er að ræða á skólaárinu 2018-2019. Önnur er umsjón á miðstigi ásamt almennri bekkjarkennslu og hin er umsjón á unglingastigi ásamt almennri bekkjarkennslu.
Leitað er að kennara sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.


Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
• Samskipta og samstarfshæfni.
• Frumkvæði og faglegur metnaður.
• Ábyrgð í starfi og stundvísi.
• Skipulagshæfileikar.
• Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
Við skólann starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur metnað í góð samskipti og því gerum við kröfu til starfsmanna að þeir búi að ríkulegri samskiptahæfni.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2018.

Umsóknarfrestur er til 13. apríl 2018.

Umsjónarkennari starfslýsing

Upplýsingar veita Birgir Jónsson skólastjóri birgir@skolar.fjardabyggd.is og / eða Ásta Stefanía Svavarsdóttir aðstoðarskólastjóri astasv@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 476-1355.

Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar - starf.fjardabyggd.is