mobile navigation trigger mobile search trigger
17.01.2018

Umsóknir um styrki til menningarmála

Menningar- og safnanefnd Fjarðabyggðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála fjárhagsárið 2018. Markmið menningarstyrkja er að styðja og efla menningarstarfsemi í Fjarðabyggð. 

Öllum er heimilt að sækja um í sjóðinn en verkefni verður að hafa skýra tengingu við Fjarðabyggð. Gjaldgeng eru verkefni sem fara fram í Fjarðabyggð, fela í sér kynningu á menningarstarfsemi í Fjarðabyggð eða ef umsjónarmenn eða listamenn hafa búsetu í Fjarðabyggð.

Ekki eru veittir styrkir til náms, reksturs eða viðhalds húsnæðis.

Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar.

Sótt er um rafrænt hér á vef Fjarðabyggðar í gegnum Íbúagátt.  Eyðublað má finna undir: Umsóknir - Umsókn um styrk til menningarstarfssemi.

Úthlutunarreglur má nálgast á heimasíðu Fjarðabyggðar.

Nánari upplýsingar veitir Karna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu í síma 896 6971 eða 470 9000 og karna@fjardabyggd.is.