mobile navigation trigger mobile search trigger
14.02.2018

Umsóknir um styrki úr minningarsjóð Ágústar Ármanns

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr minningarsjóði Ágústar Ármanns Þorlákssonar. 

Tónlistarnemar úr Fjarðabyggð sem hyggja á frekara nám geta sótt um. Einnig geta einstaklingar og stofnannir innan Fjarðabyggðar sótt um til sjóðsins fyrir verkefni sem stuðla að aukinni tónlistarmenntun.

Í umsókninni þarf að koma fram stutt lýsing á verkefninu og fyrir hverja það er ætlað. Tónlistarnemar þurfa að gera grein fyrir því hvaða skóla þeir sækja, hljóðfæri og gefa greinargóða lýsingu á náminu.

Umsóknir þurfa að berast fyrir 19. febrúar á póstfangið minnigarsjoduragustar@gmail.com. Úthlutað verður 23. febrúar.