Fjarðabyggð auglýsir starf upplýsingafulltrúa laust til umsóknar
Upplýsingafulltrúi hefur umsjón með upplýsinga- og kynningarmálum sveitarfélagsins. Hann starfar á stjórnsýslu- og þjónustusviði og vinnur m.a. að stefnumörkun og þróunarstarfi á sviðinu.
Helstu verkefni:
- Stefnumótun og umsjón með upplýsinga- og kynningarmálum sveitarfélagsins.
- Þróunar- og verkefnavinna vegna samfélagsmiðla og rafrænnar stjórnsýslu
- Miðlun frétta og fjölmiðlasamskipti
- Vefumsjón
- Umsjón með gerð kynningarefnis
- Skipulagning viðburða
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af upplýsinga- og kynningarmálum.
- Framúrskarandi samstarfs-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
- Frumkvæð og öguð vinnubrögð.
- Góð tungumálakunnátta og ritfærni
Starfið gegnir veigamiklu hlutverki sveitarfélagsins á þeim málaflokkum sem stjórnsýslu- og þjónustusvið ber ábyrgð á. Rík áhersla er lögð á teymisvinnu og þverfaglega vinnu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um stöðuna.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Jónsson, bæjarritari, í síma 470 9062 eða á netfanginu gunnar.jonsson@fjardabyggd.is.
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2017. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. ágúst n.k.
Umsóknir berist á Íbúagátt Fjarðabyggðar.