mobile navigation trigger mobile search trigger
19.05.2018

Vor í Fjarðabyggð 2018

Dagana 21. – 28. maí nk. fer fram hin árlega vorhreinsun í Fjarðabyggð. Starfsmenn framkvæmda- og þjónustumiðstöðva fara þessa daga um bæjarkjarnanna og hreinsa upp bæði garðaúrgang sem annað rusl sem óskaðer eftir að verði hirt.

Vor í Fjarðabyggð 2018

Íbúar þurfa að setja, á snyrtilegan hátt, út fyrir garða sína garðúrganginn sem óskað er eftir að verði sóttur. Ef fjarlægja þarf stærri hluti af lóð s.s. afskráð ökutæki, vinnuvélar, báta og annað slíkt er hægt að fá aðstoð hjá þjónustu- og framkvæmdamiðstöð Fjarðabyggðar. Til að komast í samband við þjónustu- og framkvæmdamiðstöð er hægt að hafa samband í síma 470 9000.

Hér til hliðar á heimasíðunni má finna upplýsingasíðu þar sem nálgast má ýmsar upplýsingar um Vor í Fjarðabyggð 2018 m.a. bæklingin sem dreift var í öll hús í vikunni.

Við viljum hvetja fólk til að nota tækifærið og taka þátt í vorhreinsuninni. Tökum höndum saman og förum inn í sumarið í snyrtilegri Fjarðabyggð.