Félagsmálanefnd - 100. fundur
haldinn í Molanum fundarherbergi 1 og 2,
16. október 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu Hulda Sigrún Guðmundsdóttir formaður, Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir aðalmaður, Borghildur Hlíf Stefánsdóttir aðalmaður, Ásmundur Páll Hjaltason aðalmaður, Heiðar Már Antonsson varamaður og Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir félagsmálastjóri er jafnframt ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1. |
1709026 - Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2018 - Félagsmálanefnd |
|
Félagsmálanefnd fór yfir drög að starfsáætlun fyrir árið 2018 og fjárheimildir sem nefndin hefur til reksturs málaflokksins. Eftir ítarlega skoðun er fjárþörf upp á u.þ.b. 27 milljónir til að ná saman áætluninni. |
||
2. |
1709195 - Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2018 |
|
Félagsmálanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar til bæjarráðs. |
||
3. |
1709210 - Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 2018 |
|
Félagsmálanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar til bæjarráðs. |
||
4. |
1710078 - Innkaup á heimsendum mat |
|
Félagsmálanefnd samþykkir tillögu félagsmálastjóra um verðfyrirspurn vegna innkaupa á heimsendum mat og vísar til bæjarráðs. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00.