mobile navigation trigger mobile search trigger
17.05.2016

145. fundur eigna- skipulags- og umhverfisnefndar

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 145. fundur  

haldinn Nesskóla í Neskaupstað, þriðjudaginn 17. maí 2016

og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson formaður, Ragnar Sigurðsson, Svanhvít Yngvadóttir, Einar Már Sigurðarson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Marinó Stefánsson Sviðstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs.

Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson sviðstjóri framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs.

Dagskrá:

1.

1605051 - 670,mál til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir)

670. mál til umsagnar frá Alþingi frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir).
Eigna- skipulags og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við umræddar breytingar á lögum um umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir).

 

2.

1605050 - 673.mál til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð

673. mál til umsagnar frá Alþingi frumvarp til laga um breyt. á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð.
Eigna- skipulags og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við umræddar breytingar á lögum um Vatnajökusþjóðgarð.

 

3.

1502042 - 735 - Deiliskipulag Hlíðarenda

Lagt fram erindi Sjóminjasafns Austurlands, dagsett 11. maí 2016, þar sem tekin eru til umfjöllunar skipulagsmál í útbæ Eskifjarðar.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur málið fyrir að nýju á næsta fundi.

 

4.

1510088 - Leikskóli Neseyri - lóðar- og gatnaframkvæmdir

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór í vettvangsferð og lýst vel á.

 

5.

1605022 - Neskóli viðhaldsmál

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd fór í vettvangsferð. Ljóst er að klæða þarf skólann og komast fyrir rakaskemmdir á jarðhæð. Sérfræðingar í málefnum myglusveppa verða hafðir með í ráðum um þær aðgerðir sem farið verður í. Nefndin felur sviðstjóra að vinna áfram að undirbúningi framkvæmda og tryggja verktaka til starfsins. fjárhagsþætti verkefnisins vísað til bæjarráðs

 

6.

1605015 - Vinna við landáætlun um uppbyggingu innviða - greining á uppbyggingarþörf

Erindi sambandsins frá 2.maí er varðar vinnu við landsáætlun um uppbyggingu ferðamannastaða og innviða.

Eigna- skipulags- og umhverfisnefndar tilnefnir umhverfisstjóra sem tengilið við verkefnið.

 

7.

1605077 - Átak í að fjarlægja ónýtar girðingar á Austurlandi

Náttúruverndarsamtök Austurlands óska eftir samstarfi vegna átaks í að fjarlægja ónýtar girðingar á Austurlandi og upplýsingum um tengilið vegna verkefnisins fyrir 31.maí nk.
Bæjarráð tók vel í erindið og vísar því til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd tekur vel í bókunina og felur umhverfisstjóra að halda utan um verkefnið.

 

8.

1605084 - 740 Miðstræti 26 byggingarleyfi - sólpallur

Lögð fram ódagsett byggingarleyfisumsókn Hugrúnar Ísaksdóttur þar sem sótt er um leyfi til að byggja 40m2 pall með skjólgirðingum við hús hennar að Miðstræti 26 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

 

9.

1604005F - Landbúnaðarnefnd - 15

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykktir fundargerðina fyrir sitt leiti.

9.1.

1604039 - Refa- og minkaveiði fyrirkomulag 2016

Samþykkt

9.2.

1502072 - Kortlagning beitarsvæða í Fjarðabyggð

Samþykkt

9.3.

1504164 - Hrossabeit í landi Kollaleiru

Samþykkt

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00.