mobile navigation trigger mobile search trigger
09.06.2015

152. fundur hafnarstjórnar

Hafnarstjórn - 152. fundur

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, þriðjudaginn 9. júní 2015 og hófst hann kl. 16:00

 

Fundinn sátu Sævar Guðjónsson, Eiður Ragnarsson, Ævar Ármannsson, Kristín Ágústsdóttir, Einar Már Sigurðarson, Steinþór Pétursson.

Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna.

Dagskrá:

 

1.

1501066 - Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2015

Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 375 dags. 22. maí 2015 lögð fram til kynningar.

 

2.

1505177 - Hafnafundur Hafnasambands Íslands haldinn 28.ágúst 2015

Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 26. maí 2015 þar sem tilkynnt er að Hafnafundur verði haldinn í Hafnarfirði þann 28. ágúst 2015. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á fundinn.

 

3.

1505124 - Umsókn um leyfi fyrir ofanjarðar gasolíugeymi og afgreiðsludælu á bryggju á Stöðvarfirði

Á fundi hafnarstjórnar 26. maí s.l. var framkvæmdastjóra falið að ræða við svæðisstjóra Olís vegna óska um að setja upp olíugeymi fyrir smábáta á Stöðvarfirði. Framkvæmdastjóri lagði fram minnisblað vegna málsins. Hafnarstjórn samþykkti að heimila Olís að setja upp olíugeymi við enda þeirra tanka sem fyrir eru við höfnina í samræmi við minnisblað.

 

4.

1505171 - Sjávarútvegsskóli Austurlands 2015

Erindi frá Sigurði Stein Einarssyni f.h. Síldarvinnslunnar dags. 28. maí 2015 þar sem óskað er eftir stuðningi Fjarðabyggðarhafna við að bjóða upp á Sjávarútvegsskóla Austurlands sumarið 2015 upp á 500.000 kr. Hafnarstjórn samþykkti styrkbeiðnina

 

5.

1503148 - Aðstöðuhús við smábátahafnir

Fyrir liggja útboðsgögn vegna þjónustuhúss fyrir smábátahöfnina á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að bjóðaverkið út. Hafnarstjórn samþykkir að boðin verði út smíði þjónustuhúss á Stöðvarfirði.

 

6.

1502047 - Norðfjörður - tunna á enda grjótgarðs

Útboðsgögn vegna tunnu á enda varnargarðs við innsiglingu í Norðfjarðarhöfn eru að verða tilbúin, en gert var ráð fyrir þessari framkvæmd í framkvæmdaáætlun ársins. Hafnarstjórn samþykkir að verkið verði boðið út þegar útboðsgögn verða tilbúin.

 

7.

1409138 - Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2015

Í kjölfar fundar 26, maí sl. um fjárhagsstöðu ársins og horfurnar framunda og umfjöllunar bæjarráðs um málið liggur fyrir minnisblað frá bæjarráði sem vísað er til hafnarstjórnar til umfjöllunar. Hafnarstjórn samþykkir minnisblaðið en með fyrirvara um endurskoðun við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016.

 

8.

1503195 - Grjótvarnir í Fjarðabyggð

Áframhald umræðu frá síðasta fundi hafnarstjórnar þann 26. maí 2015 vegna grjótvarna í Fjarðabyggð, þegar málinu var frestað til næsta fundar. Fyrir fundinum lá vinnuskjal um grjótvarnir í Fjarðabyggð og forgangsröðun þeirra sem gerir ráð fyrir áætluðum kostnaði upp á um 25,5 millj.kr. á árinu 2015. Hafnarstjórn samþykkir vinnuskjalið og vísar því til staðfestingar hjá bæjarráði.

 

9.

1311101 - Lóð fyrir nýtt netaverkstæði Fjarðanets í Neskaupstað

Erindi frá Fjarðaneti dags. 21. maí 2015. Erindið var kynnt en afgreiðslu þess frestað á fundi hafnarstjórnar þann 26. maí sl. Fyrir fundinum liggur minnisblað framkvæmdastjóra vegna málsins. Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi minnisblað og felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram.

 

10.

1310127 - Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð

Tekið fyrir erindi frá bæjarráði frá fundi ráðsins þann 8. júní sl. þar sem fjalla er um framlengingu verkefnastjóra atvinnu- og þróunarmála í Fjarðabyggð og visað var til hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir málið fyrir sitt leiti.

 

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15