mobile navigation trigger mobile search trigger
01.09.2015

154. fundur hafnarstjórnar

Hafnarstjórn - 154. fundur

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, þriðjudaginn 25. ágúst 2015 og hófst hann kl. 16:00

 

Fundinn sátu:

Pálína Margeirsdóttir, Ævar Ármannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Kristín Ágústsdóttir, Árni Þórhallur Helgason, Steinþór Pétursson.

 Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna

 Dagskrá:

 

1.

1508061 - Grendarkynning, óveruleg breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis 5 á Fáskrúðsfirði

Grenndarkynning, óveruleg breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis 5 á Fáskrúðsfirði. Grendarkynning hefst 21. ágúst 2015 og skal athugasemdum skilað inn eigi síðar en fyrir 18. september 2015. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við deiliskipulagsbreytinguna.

 

2.

1111100 - Umhverfisstefna hafna

Lögð fram frumdrög að umhverfisstefnu fyrir Fjarðabyggðarhafnir til áframhaldandi vinnu. Þennan lið fundarins sat Ásta Kristín Sigurjónsdóttir. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra áframhaldandi vinnu við áætlunina.

 

3.

1508040 - Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2016 ásamt gjaldskrá og langtímaáætlun

Undirbúningur að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2016 ásamt lantímaáætlun. Farið yfir tímaáætlun og vinnu framundan.

 

  Óskað var eftir að fundir yrðu kl. 16:30 í stað 16. Ekki voru gerðar athugasemdir við það og verður næsti fundur boðaður kl. 16:30.

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50