mobile navigation trigger mobile search trigger
19.05.2016

163. fundur hafnarstjórnar

Hafnarstjórn - 163. fundur

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, fimmtudaginn 19. maí 2016 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Sævar Guðjónsson, Ævar Ármannsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Gísli Benediktsson, Árni Þórhallur Helgason, Steinþór Pétursson.

Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna

Dagskrá:

 

1.

1601010 - Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2016

Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 384 dags. 29. apríl 2016 lögð fram til kynningar.

 

2.

1605039 - Boðun á hafnarsambandsþing 13. - 14. október 2016 á Ísafirði

Boðun á hafnasambandsþing 13. til 14. október 2016 á Ísafirði. Hafnarstjórn samþykkir að gera ráð fyrir að aðalmenn fari á hafnasambandsþingið.

 

3.

1605040 - Framkvæmdir við hafnir og hlutverk Samgöngustofu

Erindi frá Hafnarsambandinu dags. 4. maí 2016 þar sem kynnt er erindi sem því barst frá Samgöngustofu er varðar framkvæmdir við hafnir og hlutverk Samgöngustofu. Lagt fram til kynningar.

 

4.

1503148 - Aðstöðuhús við smábátahafnir

Ævar yfirgaf fundinn undir þessum dagskrárlið. Lögð fram drög að verksamningi vegna smíði þjónustuhúss við smábátahöfnina á Stöðvarfirði. Samningsupphæð er 9.632.040 kr. og skal verki lokið 31. ágúst 2016. Hafnarstjórn samþykkir samninginn og felur framkvæmdastjóra að ganga frá honum. Ævar kom að nýju inn á fundinn.

 

5.

1604124 - Beiðni um styrk vegna efniskaupa.

Tekið fyrir erindi Björgunarsveitarinnar Gerpis sem frestað var á síðasta fundi þar sem óskað var eftir styrk til efniskaupa í bryggju við björgunarsveitarhúsið. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja sveitina um efniskostnað allt að 8 millj.kr. og greiðist framlagið eftir framvindu verks og framlögðum efniskaupareikningum. Tekið af liðnum óráðstafað.

 

Farið yfir stöðu framkvæmdamála hjá höfninni.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00