mobile navigation trigger mobile search trigger
24.01.2017

172. fundur hafnarstjórnar

Hafnarstjórn - 172. fundur

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 24. janúar 2017 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Kristín Ágústsdóttir Aðalmaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.

Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson

Dagskrá:

1.

1201079 - Tilkynning um fyrirhugaða 4.000 tonna laxeldisstöð Laxar fiskeldis ehf. í sjókvíum í Fáskrúðfirði

Fyrir liggur ákvörðun Skipulagsstofnunar sags. 28. desember 2016 um matsáætlun vegna fyrirhugaðs 4.000 tonna framleiðslu á laxi í Fáskrúðsfirði á vegum Laxa fiskeldis. Niðurstaðan er sú að Skipulagsstofnun felst á matsáætlunina með ákveðnum athugasemdum sem uppfylla þurfi við gerð frummatsskýrslu. Málið kynnt.

2.

1612118 - Efnistaka í Norðfjarðarflóa

Rætt um rannsóknarskýrslur sem gerðar eru fyrir Fjarðabyggð og heimildir til notkunar á þeim af þriðja aðila. Hafnarstjórn telur að ætli utan aðkomandi aðilar að nota rannsóknir gerðar fyrir sveitarfélagið og kostaðar af því sé rétt að til komi greiðsla fyrir afnotin. Hafnarstjórn hvetur bæjarráð til að móta stefnu þar að lútandi.

3.

1505078 - 750 Bygging hafnarkants við frystigeymslu á Fáskrúðsfirði

Framlagt minnisblað framkvæmdastjóra hafna frá 11.janúar sl. vegna framkvæmda við hafnarkant á Fáskrúðsfirði. Eitt tilboð barst í verkið sem var yfir kostnaðaráætlun og samningar hafa lækkað tilboðsfjárhæð. Bæjarráð hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, umsamið tilboðsverð sem fengið er að undangengnum samningum og vísar endanlegri ákvörðun um töku tilboðs til hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir að gengið verði til samninga við MVA hf um verkið.

4.

1701180 - Umsókn um skammtímaafnot af landi við Mjóeyrarhöfn

Farið yfir beiðni um afnot af svæði til skammstíma til samsetningar kvía. Farið var yfir drög að samkomulagi og er framkvæmdastjóra falið að ganga frá samkomulagi um svæði.

5.

1210091 - Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun

Skoðun á gögnum vegna undirbúnings að gerð útboðsgagna fyrir uppdælingu efnis í farg og fyllingu við Mjóeyrarhöfn. Fyllingin miðast við gerð 160 metra kants og staðsetningu eins og í frumgögnum frá 2007. Þá er miðað við að dýpi við kant verði 14,5 metrar eins og er við núverandi kant á Mjóeyrarhöfn.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:10