174. fundur hafnarstjórnar
Hafnarstjórn - 174. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 21. febrúar 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Ævar Ármannsson Aðalmaður, Einar Már Sigurðarson Varamaður, Árni Þórhallur Helgason Varamaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.
Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson
Dagskrá:
1. |
1701008 - Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017 |
|
Fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 391 dags. 23. janúars 2017 lögð fram til kynningar. |
||
2. |
1701009 - Fundargerðir CI á árinu 2017 |
|
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 17.janúar 2017 lögð fram til kynningar. |
||
3. |
1702122 - Aðalfundur Cruise Europe 25 til 27 apríl 2017 |
|
Aðalfundur Cruise Europe verður haldinn í Bremerhaven þann 25 til 27 apríl 2017. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á fundinn. |
||
4. |
1702126 - Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Capt. Serhil Halan á Mv Marmaui ? |
|
Erindi frá Thorship dags. 16. febrúar 2017 þar sém óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Capt. Serhil Halan skipstjóra á Mv. Marmaui. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Serhil Halan skipstjóra á Mv. Marmaui. |
||
5. |
1504173 - Ósk um lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði |
|
Upplýsingar frá siglingasviði Vegagerðarinnar dags. 8. febrúar 2017 um til boð í stál fyrir lengingu hafnarkants á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir töku tilboðs frá GA ehf í stálþil og festingar fyrir Eskifjörð að upphæð 30,4 millj.kr. |
||
6. |
1702099 - Ósk um aðstöðu í fyrirhuguðu þjónustuhúsi Fjarðabyggðarhafna á Fáskrúðsfirði |
|
Erindi frá Björgunarsveitinni Geisla á Fáskrúðsfirði dags. 13. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir skoðað verði hvort sveitin geti fengið aðstöðu í væntanlegu þjónustuhúsi hafnarinnar við smábátahöfnina. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og tekur það til frekari skoðunar við ákvörðun um byggingu hússins þegar að því kemur. |
||
7. |
1702119 - Beiðni um styrk til endurbóta á bryggju við Egilsbraut 26 |
|
Erindi frá Hákoni Guðröðarsyni dags. 15. febrúar 2017 þar sem óskað er eftir styrk vegna endurbóta á bryggju framan við sjóhúsið að Egilsbraut 26 á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkir að styrkja endurbætur á bryggju og bryggjupalli í samræmi við reglur hafnarstjórnar um endurgerð gamalla bryggja. Jafnframt samþykkir hafnarstjórn að hækka hámarksgreiðslu úr 500 þ.kr. í 750 þ.kr. |
||
8. |
1612017 - Fiskeldi í Fjarðabyggð |
|
Lagt fram kort af fyrirhuguðum svæðum sjókvíaeldis í fjörðunum. Fyrir liggur að vinna þarf að undirbúningi að frekari stefnumótun í málefnum fiskeldis í fjörðum Fjarðabyggðar. Til undirbúnings þeirri vinnu hefur meðfylgjandi yfirlitsmynd verið unnin. Stefnt er á að málið verði til umræðu á íbúafundum í hverfum bæjarins í vor. Bæjarráð ásamt eigna- skipulags- og umhverfisnefnd mun vinna áfram að stefnumótun í málaflokknum. |
||
9. |
1702143 - Beiðni um umsögn skipulags- og matslýsingar vegna breytingar á ASK og DSK Leiru 1 Eskifirði |
|
Erindi frá Skipulags- og byggingafulltrúa Fjarðabyggðar dags. 20. febrúar 2017 þar sem óskað er umsagnar um skipulags og matslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027 þéttbýlisuppdráttur fyrir Eskifjörð, stækkun hafnarsvæðis ásamt breytingu á deiliskipulagi Leiru 1. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við skipulags og matslýsinguna. |
||
10. |
1702138 - Kaup á skotbómulyftara JF 0659 |
|
Lagður fram kaupsamningur fyrir skotbómulyftar af gerðinni Merlo árgerð 2007. Hafnarstjórn staðfestir kaupin. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00