175. fundur hafnarstjórnar
Hafnarstjórn - 175. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 14. mars 2017 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu:
Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Ævar Ármannsson Aðalmaður, Kristín Ágústsdóttir Aðalmaður, Einar Már Sigurðarson Varamaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.
Auk þess sat fundinn Helga G. Jónasdóttir atvinnu- og þróunarstjóri.
Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson
Dagskrá:
1. |
1609085 - 10.000 tonna laxeldi í Mjóafirði og Norðfjarðarflóa - beiðni um umsögn |
|
Vísað til kynningar frá ESU. Skipulagsstofnun hefur birt nýjar ákvarðanir um matsáætlanir fyrir fyrirhugað laxeldi Fiskeldis Austfjarða í Mjóafirði, Hellisfirði og Viðfirði. Lagt fram minnisblöð umhverfisstjóra um málið dagsett 4. mars 2017. Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd tekur undir þær athugasemdir sem fram koma í minnisblaði og felur umhverfisstjóra að koma þeim á framfæri við viðeigandi stofnanir í samráði við bæjarstjóra. Vísað til kynningar í Hafnarstjórn. Hafnarstjórn leggur til að farið verði fram á nánari skýringar um viðbrögð við náttúruvá s.s. öskufalli. Einnig mætti benda á nýlega umfjöllun um áhrif dauða þangs á viðkomandi svæði. Þá leggur hafnarstjórn til að fengið verði álit Náttúrustofu Austurlands á minnisblaðinu sem liggur fyrir fundinum. |
||
2. |
1609087 - 10.000 tonna framleiðsla á laxi í Stöðvarfirði - beiðni um umsögn |
|
Vísað til kynningar frá ESU. Skipulagsstofnun hefur birt nýjar ákvarðanir um matsáætlanir fyrir fyrirhugað laxeldi Fiskeldis Austfjarða í Stöðvarfirði. Lagt fram til minnisblöð umhverfisstjóra um málið dagsett 4. mars 2017. Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd tekur undir þær athugasemdir sem fram koma í minnisblaði og felur umhverfisstjóra að koma þeim á framfæri við viðeigandi stofnanir í samráði við bæjarstjóra. Vísað til kynningar í Hafnarstjórn. Sjá umfjöllun undir 1. dagskrárlið. |
||
3. |
1612109 - Skoðun á möguleikum á aðstöðu í landi vegna laxeldis |
|
Umræða um málefni laxeldis í fjörðum Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn óskar eftir sameiginlegum fundi með eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarráði vegna þessara mála. |
||
4. |
1005131 - Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa |
|
Umfjöllun um málefni skemmtiferðaskipa og komur þeirra til Fjaraðbyggðar. Fyrir fundinum lá vinnuskjal framkvæmdastjóra um málefnið. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram. |
||
5. |
1703048 - Sjónvarpsþættir um hafnir |
|
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. mars 2017 þar verið er að kanna áhuga hafna fyrir þátttöku í gerð kynningarþátt um starfsemi og umfang hafna. Auk þess býðst höfnunum að láta gera einn þátt fyrir sig. Framleiðslukostnaður við slíkan þátt er áætlaður um 540 þ.kr. auk ferðakostnaðar. Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt í gerð kynningarþáttar fyrir hafnirnar landsins og sérþátt fyrir Fjarðabyggðarhafnir. |
||
6. |
1703047 - Námskeið á vegum Hafnasambands íslands þann 4. maí 2017 |
|
Erindi frá Hafnasambandi Íslands dags. 6. mars 2017 þar sem tilkynnt er um fyrirhugað námskeið á vegum þess þann 4. maí 2017 um m.a samskipti við fjölmiðla. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á fundinn. |
||
7. |
1702078 - Afmörkun hafnasvæða - réttindi og skyldur |
|
Umræða um afmörkun hafnarsvæða, réttindi og skyldur því fylgjandi í tengslum við skipulagssvæði sveitarfélaga og áhrif á ákvarðanir tengdar notkun fjarðanna. Fyrir liggur lögfræði samantekt um málið frá Sókn lögmannsstofu dags. 8. febrúar 2017. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að vinna málið áfram. |
||
8. |
1703043 - Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Capt. Denis Zhitnik á Mv. Marmactan |
|
Erindi frá Thor Shipping ehf dags. 6. mars 2017 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Denis Zhitnik skipstjóra á Mv. Marmactan. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Denis Zhitnik skipstjóra á Mv. Marmactan. |
||
9. |
1701008 - Fundargerðir Hafnasamband Íslands 2017 |
|
Fundargerð Hafnasambands Íslands nr. 392 dags. 17. febrúar 2017 lögð fram til kynningar. |
||
Hafnarstjórn harmar þá ítrekuðu grútarmengun sem á sér stað við fiskvinnslustöðvar í Fjarðabyggð. Skorar hafnarstjórn á fyrirtækin sem í hlut eiga að gera varanlegar úrbætur í þessum málum sem allra fyrst.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:25