mobile navigation trigger mobile search trigger
28.03.2017

176. fundur hafnarstjórnar

Hafnarstjórn - 176. fundur

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 28. mars 2017 og hófst hann kl. 16:30

Fundinn sátu:

Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Ævar Ármannsson Aðalmaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Árni Þórhallur Helgason Varamaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.

Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson

Dagskrá:

1.

1611100 - Seatrade Fort Lauderdale 13. til 16. mars 2017

Samantekt fulltrúa Cruise Iceland dags. 23. mars 2017 vegna sýningarinnar Seatrade Fort Lauderdale nú í byrjun mars lögð fram til kynningar.

2.

1703167 - Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Shikera Mikhail skipstjóraá Samskip Hoffell

Erindi frá Samskip dags. 24. mars 2017 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskildu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Shikera, Mikhail skipstjóra á MS Samskip Hoffell. Hafnarstjórn staðfestir undnþágu frá hafnsögu fyrir Shikera, Mikhail skipstjóra á MS Samskip Hoffell.

3.

1703157 - Lagfæring á sjóvörn við bílastæði björgunarsveitarinnar Ársól á Reyðarfirði

Erindi frá björgunarsveitinni Ársól dags. 23. mars 2017 þar sem óskað er eftir að grjótvörn við bílaplan að rampi björgunarsveitarinnar verði lagfærð. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur framkvæmdastjóra að koma með kostnaðaráætlun fyrir verkið á næsta fund.

4.

1611062 - Göt á stálþili Norðfirði, Eskifirði og Reyðarfirði

Framkvæmdastjóri fór yfir vinnu við viðgerð á götum á nokkrum stöðum á stálþilum hafnanna á Eskifirði, Norðfirði og Reyðarfirði og gerði grein fyrir þeim kostnaði við þær viðgerðir sem lokið er. Hafnarstjórn samþykkir útlagðan kostnað við þessar viðgerðir. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að fá álit á kostum til frekari viðgerða eða endurnýjunar á þessum þiljum. Tillaga þarf að liggja fyrir við vinnu fjárhagsáætunargerðar fyrir árið 2018.

5.

1703120 - Stefnumótun í fiskeldismálum

Gerð grein fyrir fundi formanns,varaformanns og framkvæmdastjóra með bæjarráði vegna eldismála.

6.

1703172 - Staða rekstra og framkvæmda 2017

Farið yfir stöðu rekstrar og framkvæmda 24. mars 2017. Trúnaðarmál.

 Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00