177. fundur hafnarstjórnar
Hafnarstjórn - 177. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 10. apríl 2017 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Sævar Guðjónsson Formaður, Pálína Margeirsdóttir Varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir Aðalmaður, Kristín Ágústsdóttir Aðalmaður og Steinþór Pétursson Embættismaður.
Fundargerð ritaði: Steinþór Pétursson
Dagskrá:
1. |
1704025 - Ósk um heimild til að koma upp landtengingu |
|
Erindi frá Eskju hf dags. 4. apríl 2017 þar sem óskað er eftir heimild til að fyrirtækið komi sér upp rafmagnskassa til landtengingar fyrir skip sín á hafnarkanti innan frystihúss að Strandgötu 38. Hafnarstjórn samþykkir beiðni Eskju. |
||
2. |
1704026 - Aðalfundur Cruise Iceland í Reykjavík þann 19. maí 2017 |
|
Aðalfundur Cruise Iceland verður haldinn þann 19. maí 2017 í Reykjavík. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á aðalfundinn og um leið að bjóða samtökunum að halda aðalfund sinn 2018 í Fjarðabyggð. |
||
3. |
1210091 - Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun |
|
Fundargerð dags. 4. apríl 2017 frá opnun tilboða í dælingu undir 2. áfanga Mjóeyrarhafnar. Tvö tilboð bárust, en lægra tilboðið átti Jan De Nul upp á 872.700? eða 106,2 millj. króna á gengi opnunardags eða 72,5% af kostnaðar áætlun sem nam 146.850.000 kr. Einnig lá fyrir fundinum bréf dags. 5. apríl 2017 frá Vegagerðinni þar sem lagt er til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:45