mobile navigation trigger mobile search trigger
12.01.2017

17. fundur landbúnaðarnefndar

Landbúnaðarnefnd - 17. fundur  

haldinn í Molanum, 12. janúar 2017 og hófst hann kl. 13:00

Fundinn sátu Sigurður Baldursson Formaður, Halldór Árni Jóhannsson Aðalmaður, Ármann Elísson Aðalmaður, Þórhalla Ágústsdóttir Aðalmaður, Marsibil Erlendsdóttir Aðalmaður og Anna Berg Samúelsdóttir Embættismaður.

Fundargerð ritaði Anna Berg Samúelsdóttir

Í síma voru:

Marsibil Erlendsdóttir - Dalatanga

Þórhalla Ágústsdóttir - Norðfirði

Dagskrá: 

1.

1403118 - Lausaganga stórgripa

Landbúnaðarnefnd er einhuga um að unnið verði áfram með samþykkt um bann við lausagöngu stórgripa í Fjarðabyggð. Nefndin felur umhverfisstjóra að laga orðalag í drögunum og senda samþykktina til frekari umfjöllunar hjá eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Nefndin telur mikilvægt að kynningarferli samþykktarinnar verði hið minnsta sex mánuðir og kynnningarefnið verði kynnt fyrir nefndinni áður en það er sent út.

2.

1608074 - Fyrirkomulag fjallskila og gangnaboð, 2016

Landbúnaðarnefndin fór yfir fyrirkomulag gangna og heimtur. Talið upp það sem vitað var að hefði sést til kinda og lögð til áætlun um hvernig ætti að nálgast skepnurnar.
Fjallskilastjóri Fjarðabyggðar sér til þess að það fé sem vitað er um verði heimt af fjalli.

3.

1605077 - Átak í að fjarlægja ónýtar girðingar á Austurlandi

Landbúnaðarnefnd vill stuðla að því að halda áfram með verkefnið og felur umhverfisstjóra að vinna að frekari útfærslum fyrir það.

4.

1610078 - Leigulönd í Fjarðabyggð

Umhverfisstjóri kynnti fyrir landbúnaðarnefnd hvar reglur um leigulönd væri að finna ásamt gjaldskrá og umsóknareyðublöðum. Landbúnaðarnefnd er sátt við fyrirkomulagið.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00.