Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 181. fundur
haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði,
13. júlí 2017 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu Jón Björn Hákonarson Formaður, Einar Már Sigurðarson Aðalmaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir Aðalmaður, Ragnar Sigurðsson Varaformaður, Valur Sveinsson Embættismaður og Marinó Stefánsson Embættismaður.
Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Dagskrá:
1. |
1702136 - Lokun urðunarstaða í landi Rima í Mjóafirði |
|
Lögð fram lokunaráætlun fyrir urðunarstað Fjarðabyggðar í landi Rima í Mjóafirði, dagsett 11. júlí 2017, þar sem tekið var á móti lífrænum úrgangi frá fiskeldi í firðinum. Urðunarstaðurinn hefur ekki verið notaður síðan 2007. Gengið var frá urðunarstaðnum þegar urðun lauk og er hann nú gróinn og hefur aðlagast nálægu landslagi. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir lokunaráæltun og felur verkefnisstjóra umhverfismála að senda hana til Umhverfisstofnunar. |
||
2. |
1706168 - 750 Skólavegur 31a, umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi |
|
Lögð fram umsókn Elíasar Þórs Elíassonar, dagsett 29. júní 2017, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Skólavegi 31a á Fáskrúðsfirði. Lögð fram tillaga að lóðarblaði. |
||
3. |
1707001 - 755 Sævarendi 13 - byggingarleyfi, spennistöð |
|
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Rarik ohf, dagsett 30. júní 2017 þar sem sótt er um leyfi til að reisa 1,5 m2 og 1,0 m3 jarðspennistöð á lóð fyrirtækisins að Sævarenda 13 á Stöðvarfirði. |
||
4. |
1208097 - 755 - Deiliskipulag Söxu |
|
Auglýsingartími er liðinn. Engar athugasemdir bárust. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, deiliskipulag Söxu. |
||
5. |
1606072 - 735 Strandgata 4- umsókn um stöðuleyfi- gámaeiningar |
|
Lagt fram bréf Pálma Benediktssonar hjá Mannvit hf. fh. Eskju, dagsett 20. júní 2017, þar sem óskað er eftir framlengingu á stöðuleyfi fyrir gámaeiningar fyrir bráðabirgðagistingu að Strandgötu 4 á Eskifirði til 1. maí 2018 vegna byggingar uppsjávarfrystihúss Eskju að Leirubakka 4 á Eskifirði. Samþykki lóðarhafa liggur fyrir. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlengingu stöðuleyfis til 1. maí næstkomandi. |
||
6. |
1707011 - Ósk um umsögn fyrir breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalhérðs 2008-2028 |
|
Lögð fram til umsagnar skipulagslýsing vegna breytingar á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 þar sem gert er ráð fyrir minnkun frístundabyggðar í landi Davíðsstaða en þar verði gert ráð fyrir landbúnaðarnotkun í staðinn. |
||
7. |
1611016 - Ný reglugerð um heimagistingu, gististaði og skemmtanahald - verkferlar ofl. |
|
Lögð fram til umfjöllunar drög að reglum vegna sölu gistingar í Fjarðabyggð. |
||
8. |
1706028 - Gatnagerð í hesthúsabyggð á Reyðarfirði |
|
Lagt fram að nýju bréf Önnu Berg Samúelsdóttur og Stefáns Hrafnkelssonar, dagsett 30. maí 2017, þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið komi að gatnagerð innan hesthúsa- og frístundabúskaps svæðisins Kolls í Reyðarfirði. Engin gatnagerð eða sameiginleg heyrúllu- og bílastæði eða taðþrær hafa verið gerðar á svæðinu í samræmi við deiliskipulag Kolls. Erindi vísað frá bæjarráði. Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa dagsett 11. júlí 2017. |
||
9. |
1707012 - Skilti við prammann í Mjóafirði |
|
Lagður fram póstur frá Minjastofnun Íslands, dagsettur 3. júlí 2017, þar sem kynnt er að stofnunin hafi fengið styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamanna til að setja upp upplýsingarskilti við landgönguprammann sem liggur í fjörunni innst í Mjóafirði. |
||
10. |
1707049 - Beiðni um umsögn - efnistaka við Eyri allt að 80.000.m3 |
|
Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 7. júlí 2017, um umsögn um hvort og á hvaða forsendum fyrirhuguð efnistaka Fjarðabyggðar við Eyri í Reyðarfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Lögð fram greinagerð Alta um fyrirhugaða efnistöku Fjarðabyggðar við Eyri í Reyðarfirði. |
||
11. |
1707052 - 740 Vindheimanaust 8 - byggingarleyfi - breytingar utanhúss og stækkun |
|
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðmundar Skúlasonar fh. G.Skúlason vélaverkstæði ehf, dagsett 11. júlí 2017, þar sem óskað er eftir heimild til að staðsetja geymsluhúsnæði sem staðið hefur á lóð fyrirtækisins að Nesgötu 6 í n-a horni lóðarinnar við Vindheimanaust 8 á Norðfirði. Einnig er sótt um leyfi til að setja tvo glugga á austurhlið núverandi byggingar á lóðinni. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:00.