mobile navigation trigger mobile search trigger
30.08.2017

183. fundur eigna- skipulags og umhverfisnefndar

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 183. fundur  

haldinn í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, 28. ágúst 2017 og hófst hann kl. 16:00

 

 

Fundinn sátu: Jón Björn Hákonarson formaður, Svanhvít Yngvadóttir aðalmaður, Einar Már Sigurðarson aðalmaður, Esther Ösp Gunnarsdóttir aðalmaður, Ragnar Sigurðsson varaformaður, Valur Sveinsson embættismaður og Marinó Stefánsson embættismaður.

 

Fundargerð ritaði:  Marinó Stefánsson

 

Dagskrá:

 

1.

1708087 - Leirubakki 3 Matsbeiðni Skeljungs

Lögð fram til kynningar matsbeiðni Skeljungs þar sem þess er farið á leit að kallaður verði matsmaður til að meta skemmdir og tjón á olíubirgðastöð félagsins á Eskifirði vegna landsigs.

2.

1708037 - Heimavöllur Leiknis

Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið og vísar því til umræðu í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2018

3.

1611029 - Viðbygging við leikskólann Lyngholt

Lagðar fram til kynningar frumteikningar af viðbyggingum við leikskólana á Reyðarfirði og Eskifirði. Nefndinni list vel á framkomar teikningar og felur sviðstjóra áframhaldandi vinnu við málið. Jafnframt tekur nefndin undir bókun fræðslunefndarinnar frá 43. fundi þann 23. ágúst síðastliðinn um að viðbygging við leikskólann Lyngholt sé brýn vegna fjölgunar barna þar.

4.

1706154 - Skipulag á leiksvæðum í Fjarðabyggð

Nefndin fór yfir skipulag leiksvæða í Fjarðabyggð og staðsetningu þeirra.
Sviðstjóra falið að láta teikna væntanlegar staðsetningar á loftmynd sem birt verður á heimasíðu sem framtíðar skipulag þeirra og vísað til fjárhagsáætlunargerðar.

5.

1703079 - Eignarsjóður viðhaldsmál 2018

Farið yfir forsendur framkvæmda og viðhaldsáætlunar, sviðstjóra falið að vinna áætlun áfram í samræmi við umræður á fundinum.

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00